22október

Over And Out

Villl benda öölllum á að aðal síðan í bænum er open for business og þar með segjum við skilið við öll bloggkerfi íslands og segjum halló við .IS   JJEEEEE



www.fullur.is
22. október 2006 klukkan 02:06
Endalaust fullir!
Engin athugasemd
22október

FLUTTIR !!!

VIÐ ERUM FLUTTIR Á WWW.FULLUR.IS !!!
22. október 2006 klukkan 02:04
Endalaust fullir!
Engin athugasemd
20október

Ömurlegt eđa Gott?

Þetta eru ekki búnir að vera góðir dagar uppá síðkastið!.. allir veikir.. ömurleg helgi!.. Barselóna ömurlegir á miðvikudag og tapa gegn Tjelsí! skítakuldi og frost! og allir brjálaðir og öskrandi á mig!.. Já þannig er staðan með mig og í vinnuni! Það er svo brjálað að gera alla daga og það er fólk eypandi allan dagin af pirringi!.. ég er alveg "villtu ekki bara fara róa þig niður! Ég er að segja ykkur það! Botnleðja sagði það best hérna back in the days.. Fólk er fífl!

Ég ætla bara að taka mig til í andlitinu og fara hugsa jákvætt um alla slæmu hlutina t.d.

Mmmm hvað þetta er hressandi kuldi úti, maður er allavega ekki dasaður í þessu frosti!
Mmmm hvað það er gott að vera svona veikur.. þá er afsökun til að fá sér hálsbrjósyk!
Mmmm hvað það er gott að hafa svona lélegar helgar inná milli þá er næsta helgi ávalt betri!
Mmmm hvað það er gaman þegar Barselóna tapar..... nei... það er ömurlegt! sorry

Svo er líka bara alltaf gott að hugsa að það eru margir með verri daga en maður sjálfur.. þá líður manni alltaf vel!



20. október 2006 klukkan 02:24
Endalaust fullir!
Engin athugasemd
19október

bless

Það er ekki rassgat að gerast .... helgin var fín. ekkert að gerast um næstu helgi nema læra eða pabbahelgi hjá sumum .... bless
19. október 2006 klukkan 22:23
Endalaust fullir!
Engin athugasemd
13október

Djamm á laugardaginn

Er það ekki neglt.. er ekki tjútt á laugardaginn?? ... bjórinn flæðir einsog vín og öfugt ... allavegana er ég mega mega heitur fyrir gleðskap; hittast kannski bara heima... taka frumraun á Fifa 07 og svo bærinn ... hvernig hljómar það? ...

ps. Vil benda áhugasömum um rauðhært fólk á þessa síðu
     
http://www.gingerkids.org/
13. október 2006 klukkan 19:10
Endalaust fullir!
3 athugasemdir
11október

Herra John B 2006

Jæja, þá er könnunni lokið og var þetta mjög tæpt að þessu sinni. Ég vil þakka þeim fjölmörgu sem að tóku þátt í þessu og sérstaklega mínum stuðningsmönnum !

Hver er flottasta 80's freak-ið

  • Ásgeir B ( 8% / 8 atkvæði )
    Danni B ( 35% / 34 atkvæði )
    Balli B ( 13% / 13 atkvæði )
    Sigurgeir B ( 34% / 33 atkvæði )
    Allir jafn flottir ( 3% / 3 atkvæði )
    Glataðir gaurar! ( 6% / 6 atkvæði )

Danni
11. október 2006 klukkan 17:54
Endalaust fullir!
3 athugasemdir
08október

Edrú Skemmtinefnd Fulla fólksins

Jæja!.. þá er komið svokallað drykkjubann!.. Allir búnir að vera edrú í eina viku!.. shhii! Nú tekur önnur vika við, en vikan sjálf er nú auðveld þar sem við erum ekki alkar.. en erum samt sannir djamm-fíklar og þá er helgin nú alveg annað mál! Okkur finnst bara yndislegt að skemmta okkur!.. það er alveg toppurinn á tilverunni! Sama hvort það sé ein góð bæjarferð, sumarbústaður, party með eða án potts, þá er alltaf tími og staður fyrir smá drykkju og gleði! :D En við sjáum til hvað Fullu gaurarnir standast lengi með að fara ekki út po lífið!..

En nú er ég að spá að við tökum okkur saman og gerum skemmtanarnefnd innan vinarhópsins og tökum að okkur 2 og 2 saman að skipuleggja eithverja svaðalega viðburði í sambandi við gott kvöld og drykkju! Þið getið ákveðið ykkur hverjir vilja vera með í þessari skemmtinefnd, ég býð mig fram í hana hér og nú :D
 
En ég var nú alveg að spá samt í því að gera soldið svakalegt í næsta mánuði með ykkur strákar.. ég vill allavega byrja á því að skipuleggja (ásamt einum öðrum) óvissuferð í næsta mánuði! Þar sem það kemur bara stór bíll fyrir okkur sækir okkur á þann stað sem djammið byrjar á, förum eithvað út á land þar sem ég og annar verðum búnir að plana eithverja viðburði sem verða þá alveg fram á nótt!.. s.s eithver laugardag í næsta mánuði þá tökum við allir til þar sem við byrjum drykkjuna og gamanið kl 12:00 í hádeginu og verðum allan daginn í stuði og gamani, keyrandi í óvissuferð út á land með ýmsum uppákomum og að sjálfsögðu fljótandi áfengi allan tímann!.. það verður bara eithver ákveðinn kostnaður frá hverjum og einum til að fjármagna þetta en nú er bara spurningin!.. hver er til??? :D:D:D

Kv. Ásgeir Örn Formaður skemmtinefndar!
08. október 2006 klukkan 18:33
Endalaust fullir!
12 athugasemdir
05október

kúkur og piss .. hehehe...

Sælar...

Þar sem ég er mikill áhugamaður um kúk og piss húmor hef ég ákveðið að segja ykkur frá mögnuðum klósettleikjum sem má stundu þegar vel lætur til... athugið samt að fara varlega því hætturnar leynast víða...

1. Þegar komið er á klósettið skal byrjað á því að sturta niður og reyna að klára að skíta áður en klósettkassinn er tilbúinn.

2. Gaman er að smyrja sér samloku og taka hana með sér á klósettið. Taka sér bita og um leið og þú kingir sleppir maður einum funheitum skít í postulínið. Þá er tilfinningin eins og bitinn detti beint í gegnum sig og út um rassgatið.


3. Ef að einstaklingurinn er þreyttur er helvíti skemmtilegt og afslappandi að leggja sig bara á meðan athöfninni stendur og leyfa úrgangum að leka rólega útum óæðriendan á meðan maður sefur ljúfum blundi.


4. Ef að einstaklingurinn er (eins og undirritaður) mikill áhugamaður um bremsuför í postulíninu er gott ráð að snúa öfugt á settinu og snúa að klósettkassanum. Ennig er gaman að leika sér að því að sturta niður því það er mjög frískandi.


5. Ef að einstaklingurinn hefur gaman að því að plokka skít úr þarmaskegginu eða vill eyða miklum tíma í að skeina sér er gott að sitja með krosslagða fætur.


6. Gerið hljóð með munninum og reynið að leika eftir með rassgatinu.

Og munið að sturta aldrei niður strax ef ske kynni að einhver utanaðkomandi aðili hafi áhuga á að sjá afraksturinn.


Ég vona að þetta komi ykkur að gagni og verði skemmtilegt innlegg í ykkar klósettferðir.

Góðar hægðir,
Balli !!

05. október 2006 klukkan 19:44
Endalaust fullir!
2 athugasemdir
02október

Friday for Freakz

Helgin er afstaðin og ég er ekki frá því að ég er örmagna... og ég held að ég tali fyrir hönd okkar allra hérna.

Föstudagurinn byrjaði fínt... kíkti í ræktina og þaðan hitti ég svo Danna og við fórum í leiðangur, grifflur,lakkrísbindi og naglalakk var eitthvað sem var á innkaupalistanum því um kvöldið var svo stefnan sett á John B og auðvitað þurftum við að lúkka eins og kauði.

Þegar því var reddað þá brunaði ég beint í Salsa danskennslu sem var eiginlega bara vandræðaleg frá A - Ö en einnig lúmskt skemmtileg, en ég vil ekkert fara mikið ofan í hvað fór fram þar nema að mjaðmir voru hrisstar og snúningar voru gerðir... mega mega.


Klukkan 9 - 9.30 var hittingur hjá Sigurgeir og byrjað á fyrsta bjórnum... og fljótlega kom föðrunarfræðingurinn hún Auður og byrjaði að mála okkur fyrir kvöldið.. okkur þá meina ég mig (baldur),ásgeir,sigurgeir og danna ... restin bjaddni,eyþór og bjarki voru of miklar stelpur til þess að láta mála sig :).
Fljótlega þá litu við strákarnir allir einsog krakkmella á 80's tímabilinu og án efa mikil stemming í liðinu fyrir kvöldið.
Þegar við komum á nasa var staðurinn nánast tómur og það fáa fólk sem var á staðnum leit furðuaugum á skrílinn sem kom innum Nasa-dyrnar, málaðir um augun,með svart naglalakk og í 80's outfitti dauðans.
En það leið ekki að löngu að staðurinn fór að fyllast og massa stemming var byrjuð að myndast þar inni hjá fólkinu.
Nokkru áður en John B fór á sviðið þá kíktum Danni,ásgeir og ég niður til hanns baksviðs því danni var búinn að selja lifrina sína og fékk að launum VIP passa. Eins og alltaf var hann með cameruna á lofti (www.myspace.com/johnb ) og myndaði okkur meðan við geyfluðum okkur í vélina einsog sönnum 80's manni sæmir.
Eftir þetta á byrjaði giggið hjá honum sem var hreint út sagt geðveikt að mínu mati og dansaði ég alla rúmlega tvo tímana sem hann var á sviðinu... gegnsósablautur af svita fór ég að sofa með bros á vör ... þvílíkur dagur!



PS. Varð að setja þetta með...

02. október 2006 klukkan 05:58
Endalaust fullir!
4 athugasemdir
28september

Hversu mikiđ 80's ....

djöfull verður föstudagurinn tekinn og rasskelltur, maður byrjar á því að hita sig upp með því að taka svo sem einn salsa danstíma, eftir það verður brunað til Sigurgeirs þar sem svölustu rónar bæjarins munu án efa taka mig með blautum örmum og svo er það það... já auðvitað ætlum við að taka þetta alla leið... ef John B er 80's , þá verðum við 80's... við erum að tala um augnskugga,grifflur,svitabönd... skærlituð föt.. og ekta 80's attitjút... blöstum drömm and beisið ...  og dönsum af okkur það litla sem er eftir af okkar litla rassgati ! ...

tja tja ... megapopp...

kv. Balli
28. september 2006 klukkan 19:30
Endalaust fullir!
1 athugasemd

Fun Stöff!

Auglýsing

TILKYNNING

FLUTTIR Á WWW.FULLUR.IS

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur